Atletico Madrid vann Ofurbikar Evrópu með 4-2 sigri á Real Madrid í framlengdum leik fyrr í kvöld.
Diego Costa skoraði bæði mörk Atletico í venjulegum leiktíma og lét heldur betur finna fyrir sér í leiknum.
Hann náði meira að segja að lauma sparki í andlitið á Sergio Ramos, sem gladdi marga aðdáendur Liverpool á Twitter. Það er vegna þess að Ramos virtist meiða Mohamed Salah viljandi í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í maí síðastliðnum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá atvikið úr úrslitaleik bikarsins. Ekki er hægt að fullyrða um hvort sparkið hafi verið viljandi eða ekki.
Sergio Ramos getting "accidentally" kicked in the head by Diego Costa 👍
— Roar Of The Kop (@_RoarOfTheKop_) August 15, 2018
pic.twitter.com/nH9iqv2LI7
Athugasemdir