Breiðablik-Stjarnan klukkan 19:15 í kvöld
„Þetta er styrsta leiðin að bikar hjá okkur í ár. Við erum svolítið langt frá í deildinni," segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, um leikinn gegn Breiðabliki í úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn
Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn
Breiðablik og Stjarnan hafa oft mæst undanfarin ár í hörkuleikjum.
„Þetta eru mjög skemmtilegir leikir og það verður gaman að mæta þeim hér. Ég hef ekki mætt þeim á Laugardalsvelli áður. Þetta er virkilega gott lið og þetta eru alltaf hörkuleikir. Þetta verður hörkuleikur."
„Við þurfum að spila agaðan og góðan sóknarleik, hugsa um okkur sjálfar og halda einbeitingu í 95 mínútur."
Stjarnan er í fjórða skipti í bikarúrslitum á síðustu fimm árum. Í fyrra tapaði liðið fyrir ÍBV í framlengdum leik en Adda var þar fjarri góðu gamni þar sem hún var í barneignaleyfi.
„Þetta var miklu erfiðara en ég bjóst við og allt öðruvísi en það er alltaf jafn súrt að tapa," sagði Adda um leikinn í fyrra.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild
Athugasemdir