Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. ágúst 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Klopp: Þurfum að læra að vera áfram reiðir
Liverpool mætir Crystal Palace á mánudagskvöld.
Liverpool mætir Crystal Palace á mánudagskvöld.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að leikmenn sínir verði að sýna reiði og hungur gegn Crystal Palace á mánudagskvöld.

Liverpool byrjaði ensku úrvalsdeildina á 4-0 sigri á West Ham um síðustu helgi og Klopp vill passa að sínir menn fylgi því eftir.

„Við þurfum að passa að við verðum klárir gegn þeim eftir allar jákvæðu fréttirnar í vikunni," sagði Klopp.

„Þetta er stór áskorun því fólk er ekki ennþá farið að venjast góðum fótbolta hjá okkur og þegar við erum góðir segir fólk 'þið eruð ótrúlega góðir.' Við höfum hins vegar ekki gert neitt ennþá."

„Við þurfum að vera áfram jákvæðir en við þurfum líka að læra að vera reiðir áfram."

Athugasemdir
banner