Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. ágúst 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Rondon vill vera áfram hjá Newcastle
Salomon Rondon.
Salomon Rondon.
Mynd: Getty Images
Framherjinn Salomon Rondon kom til Newcastle í sumar frá West Brom sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor, Rondon kom á láni.

Newcastle og West Brom skiptu á leikmönnum, Dwight Gayle fór frá Newcastle til West Brom á láni og Rondon fór frá eins fyrr segir West Brom til Newcastle á láni.

Rondon vonast til þess að vera áfram hjá Newcastle.

„Að vera hérna áfram er planið og eina leiðin til þess að ég fái að vera hér áfram er að skora mörk og gera mitt allra besta."

„Ég heyrði fyrst af áhuga Newcastle fyrir um tveimur mánuðum en viðræðunar gengu hægt fyrir sig, ég beið nokkuð lengi frá því að ég sagðist vilja fara til Newcastle og þar til ég var kominn þangað," sagði Rondon sem kom ekkert við sögu í markalausu jafntefli Cardiff og Newcastle í gær.

Athugasemdir
banner
banner