Það eru fjórir leikir búnir í 3. deild karla í dag. Dalvík/Reynir virðist vera á leið upp í 2. deild, en liðið gerði jafntefli við KFG í toppbaráttuslag.
Leikurinn endaði markalaus en varnarleikur hefur verið aðalsmerki Dalvíkinga í sumar, en liðið hefur haldið hreinu í níu af 14 leikjum sínum 2. deild í sumar. Dalvík/Reynir er taplaust í síðustu 10 leikjum.
KH heldur öðru sæti deildarinnar þrátt fyrir tap gegn Einherja, þar sem KFG vann ekki. KH tapaði á Vopnafirði, 2-1, þrátt fyrir að hafa verið manni fleiri frá 27. mínútu. Ótrúlegt.
KF sigraði Vængi Júpiters 2-0 og Ægir vann 2-0 sigur á botnliði Sindra, en Ægir er í næst neðsta sæti. Aðeins eitt lið mun falla úr 3. deildinni þar sem verið er að fjölga í deildinni. Ægir er núna með 11 stig, en Sindri hefur 10 stig.
Dalvík/Reynir virðist ætla að fara upp, en öll lið deildarinnar fyrir utan Ægi og Sindra eru að berjast um annað sætið. Á eftir mætast KV og Augnablik í mikilvægum leik.
Fjórar umferðir eru eftir í deildinni.
Ægir 2 - 0 Sindri
1-0 Emanuel Nikpalj ('35)
2-0 Guðmundur Garðar Sigfússon ('59)
KF 2 - 0 Vængir Júpiters
1-0 Hákon Leó Hilmarsson ('64)
2-0 Grétar Áki Bergsson ('68)
Einherji 2 - 1 KH
1-0 Dilyan Nikolaev Kolev ('3)
1-1 Aron Skúli Brynjarsson ('73)
2-1 Bjartur Aðalbjörnsson ('83)
Rautt spjöld: Dilyan Nikolaev Kolev, Einherji ('27)
KFG 0 - 0 Dalvík/Reynir
Trump virðist hafa byggt vegginn sinn fyrir markið hjá D/R! taplausir í 10 leikjum í röð. 8 clean sheet! 9 cs í 14 leikjum í heildina! #MakeDallasGreatAgain #fotbolti
— Jóhann Már Kristinss (@joikidda) August 18, 2018
Athugasemdir