Marcos Alonso reyndist hetja Chelsea þegar liðið sigraði Arsenal í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag, 3-2.
Markið skoraði hann á 81. mínútu, Chelsea komst í 2-0 í fyrri hálfleik en Arsenal tókst að jafna fyrir lok fyrri hálfleiks.
„Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn, við byrjuðum frábærlega en gáfum svo aðeins eftir. Þeir spiluðu betur en við í lok fyrri hálfleiks en í seinni hálfleik vorum við betra liðið á vellinum og við náðum í verðskulduð þrjú stig," sagði Alonso.
Chelsea er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina á þessu tímabili en þeir heimsækja Newcastle í næstu umferð.
Athugasemdir