sun 19. ágúst 2018 11:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staðfestir að De Gea muni skrifa undir nýjan samning
Að margra mati besti markvörður í heimi.
Að margra mati besti markvörður í heimi.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur staðfest að David de Gea sé að fara að skrifa undir nýjan samning.

De Gea hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid í mörg og var hann ótrúlega nálægt því að fara þangað í eitt skiptið, en gamla góð faxtækið klikkaði hjá Man Utd.

Spánverjinn hefur fest sig í sessi sem einn besti markvörður í heimi.

„De Gea er Manchester United leikmaður sem mun fljótlega skrifa undir nýjan samning," sagði Mourinho við blaðamenn.

„Hann kann vel við sig hérna, við elskum hann, við viljum halda honum, hann vill vera hérna."

Í maí síðastliðnum var De Gea, sem kom til United frá Atletico Madrid 2011 á 18,9 milljónir punda, kjörinn leikmaður ársins hjá félaginu í fjórða sinn.

Þá var hann valinn í lið ársins í deildinni.

De Gea verður í eldlínunni seinna í dag þegar Manchester United heimsækir Brighton í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner