Í dag kl. 16:00 hefst leikur KA og KR í 17. umferð Pepsí-deildar karla. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.
Liðin hafa svipuðu gengi að fagna í síðustu fimm leikjum, unnið þrjá leiki, tapað einum og gert eitt jafntefli. KR situr í 4. sæti með 24 stig en KA er í 7. sæti með 22 stig. Leikurinn er mikilvægur báðum liðum í Evrópubaráttunni.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
KR hefur ekki unnið leik síðan 30. júlí, gerðu jafntefli við Fjölnir í síðustu umferð og töpuðu þar áður á móti Breiðablik. KA vann 0-3 sigur á móti Keflavík í síðustu umferð.
KA gerir eina breytingu frá leiknum gegn Keflavík. Archie Nkumu kemur inn í stað Daníel Hafsteinssonar sem tekur út bann í dag.
KR gerir sömuleiðis eina breytingu á sínu liði. Björgvin Stefánsson kemur inn í liðið í stað André Bjerregaard sem fer á bekkinn.
Byrjunarlið KA:
18. Aron Elí Gíslason (m)
2. Bjarni Mark Antonsson
3. Callum Willams
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson (f)
11. Ásgeir Sigurgeirsson
12. Milan Joksimovic
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archie Nkumu
55. Aleksandar Trninic
99. Vladimir Tufegdzic
Byrjunarlið KR:
30. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Björgvin Stefánsson
10. Pálmi Rafn Pálmarsson
11. Kennie Knak Chopart
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Kristinn Jónsson
22 Óskar Örn Hauksson (f)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir