Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 20. ágúst 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Björn Bergmann skoraði með maganum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði tvö fyrstu mörk Rostov í 4-0 sigri á Yenisey í rússnesku úrvalsdeildinni í gær.

Sverrir Ingi Ingason og Ragnar Sigurðsson byrjuðu í hjarta varnarinnar hjá Rostov og héldu þeir hreinu.

Síðara markið hjá Birni var áhugavert en hann renndi sér þá í fyrirgjöf og virtist koma boltanum með maganum í átt að marki. Boltinn hafði þó mögulega einnig viðkomu í hnénu á honum áður en hann fór í netið.

Sjón er sögu ríkari en mörk Björns síðan í gær má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner