Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 20. ágúst 2018 12:30
Elvar Geir Magnússon
PSG vill fá Rakitic
Rakitic í leik með Króatíu gegn Íslandi á HM.
Rakitic í leik með Króatíu gegn Íslandi á HM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ivan Rakitic, miðjumaður Barcelona, er ofarlega á óskalista Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain.

Þetta segir El Mundo Deportivo í Katalóníu.

Rakitic er með 125 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum við Börsunga.

Fyrr í þessum mánuði sagði El Mundo Deportivo að PSG og Mónakó hefðu áhuga á þessum fyrrum miðjumanni Sevilla.

Rakitic var sá leikmaður Barcelona sem lék flestar mínútur á síðasta tímabili.

Rakitic var flottur með króatíska landsliðinu á HM en hann á 99 landsleiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner