Línur eru farnar að skýrast fyrir úrslitakeppnina í 4. deild karla en í þessari viku er síðasta umferðin framundan í riðlakeppni áður en úrslitakeppnin hefst laugardaginn 1. september.
Fimm lið eru nú þegar örugg í úrslitakeppnina úr riðlunum átta en þar á meðal liggur fyrir að Kórdrengir og ÍH fara áfram úr D-riðli.
Athygli vekur að ÍH er með fjóra í mínus í markatölu en fer samt áfram í úrslitakeppnina.
ÍH hefur unnið sex leiki en þeir unnust allir með einu marki. Liðið tapaði hins vegar 3-1 gegn Kórdrengjunum og bæði 6-1 og 3-1 gegn Kríu.
Sigrarnir sex sigla ÍH hins vegar áfram í úrslitakeppnina en það kemur endanlega í ljós í vikunni hvaða önnur lið fara áfram. Í fréttinni má sjá stöðuna í riðlunum en tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram.
Lið sem örugg í úrslitakeppnina
Ýmir (A-riðill)
Reynir S. (B-riðill)
Álftanes (C-riðill)
Kórdrengir (D-riðill)
ÍH (D-riðill)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

Athugasemdir