Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 20. ágúst 2018 18:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Þú hlýtur að vera mjög góð í vinnunni þinni
Mourinho var reiður eftir tap gegn Brighton.
Mourinho var reiður eftir tap gegn Brighton.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóra Manchester United, var ekki skemmt í viðtali eftir tap gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær. United spilaði mjög illa í leiknum og tapaði sanngjarnt 3-2.

Mourinho fór á blaðamannafund en hann ræddi einnig við Carrie Brown, fréttakonu hjá Bein Sports.

Viðtalið hefur fengið nokkra athygli og ekki af jákvæðum ástæðum. Mourinho sýndi kaldhæðni í svörum sínum.

„Við gerðum mistök og okkur var refsað fyrir þessi mistök," sagði Mourinho þegar Brown spurði hann út í frammistöðuna.

Því næst tók Brown upp á því að spyrja Portúgalann út í andrúmsloft og samskipti á milli leikmanna, hvort það hafi ekki vantað í þessum leik. Þessi spurning fór ekki vel í Mourinho.

„Þú hlýtur að vera frábær í þínu starfi fyrst þú getur talað um andrúmsloft á milli leikmanna þegar þú ert upp í stúku," sagði Mourinho en viðtalið stóð ekki mikið lengur yfir.

Myndband má sjá hér að neðan.

Sjá einnig:
Mourinho neitar að gagnrýna leikmenn



Athugasemdir
banner
banner
banner