Úr því sem komið var þá var þetta bara mjög gott. Heldur Víkingum í smá augsýn og þeir fara ekki svona langt framúr okkur eins og hefði orðið en mjög dapurt samt að ná ekki öllum þremur punktunum“ Sagði Guðmundur Karl um leik kvöldsins.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 2 Víkingur R.
Fjölnismönnum hefur gengið illa að halda forystu í sumar og oftar en ekki misst góðar stöður niður. Kann Guðmundur skýringar á því?
„Nei ég eiginlega bara lýsi eftir skýringunni á því. Þá gæti maður kannski lagað það og komist í veg fyrir þetta.En þetta er bara orðið mjög pirrandi að við séum að spila ágætlega en fá ekkert út úr þvi.“
Fjölnismenn eiga gríðarlega erfiða leiki eftir framundan gegn toppliðum deildarinnar og ljóst að við ramman reip verður að draga. En er einhver uppgjöf í Grafarvogspiltum?
„Nei nei, Við verðum allavega að reyna, gera okkar allra besta til að halda okkur í deildinni. Ef við höfum ekki trú á þessu er ekkert að fara að gerast þannig að við þurfum að hafa trú á verkefninu og gera okkar besta.“
Sagði Guðmundur Karl en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir