Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. ágúst 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Man City selur Denayer til Lyon (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur selt belgíska miðvörðinn Jason Deanyer til Lyon í Frakklandi.

Kaupverðið er í kringum 10 milljónir evra eða 9 milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Denayer kom til Manchester City árið 2014 en náði aldrei að spila með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Denayer hefur farið til Celtic, Galatasaray og Sunderland á láni undanfarin fjögur tímabil.

Denayer fór tvívegis til Galatasaray á láni en hann var í Tyrklandi síðastliðinn vetur.
Athugasemdir
banner
banner