Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. ágúst 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Ástand Nouri skánar - Getur haft samskipti við fjölskyldu sína
Nouri sýnir framfarir en ferli hans er lokið.
Nouri sýnir framfarir en ferli hans er lokið.
Mynd: Getty Images
Ástand Abdelhak Nouri hefur batnað en fyrir ári síðan hneig hann niður í æfingaleik með Ajax og hlaut alvarlegan og varanlegan heilaskaða.

Þessi 21 árs leikmaður var að spila æfingaleik gegn Werder Bremen í júlí 2017 þegar hann féll skyndilega til jarðar og endurlífgunartilraunir fóru fram á vellinum áður en hann var fluttur á sjúkrahús.

Ajax gaf það svo út að hann myndi ekki snúa aftur á fótboltavöllinn.

Bróðir Nouri, Abderrahim, segir að taugafræðilegt ástand sé orðið betra.

„Líkamlega er þetta erfitt, hann hreyfir ekki líkama sinn heldur bara höfuðið. En stundum fer hann úr rúminu og situr í hjólastól," segir Abderrahim.

Justin Kluivert, fyrrum liðsfélagi Nouri hjá Ajax, valdi númerið 34 á treyjuna sína eftir að hann gekk í raðir Roma. Það var til heiðurs Nouri sem var með sama númer í Hollandi.

Nouri lék 15 leiki fyrir aðallið Ajax tímabilið 2016-17 og var talinn eiga bjarta framtíð í boltanum. Hann spilaði fyrir öll yngri landslið Hollands.
Athugasemdir
banner
banner