Tottenham tilkynnti í dag að hollenski framherjinn Vincent Janssen hafi farið í smávægilega aðgerð á fæti í dag.
Hinn 24 ára gamli Janssen hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham síðan hann kom frá AZ Alkmaar árið 2016.
Á síðasta tímabili var Janssen á láni hjá Fenerbahce í Tyrklandi.
Janssen er ekki í áætlunum Mauricio Pochettino fyrir komandi tímabil en hann er ekki lengur með treyju númer níu hjá Tottenham.
Reiknað hafði verið með að Janssen myndi finna nýtt félag í þessum mánuði en nú gætu meiðslin sett strik í reikninginn.
Athugasemdir