Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. ágúst 2018 14:50
Magnús Már Einarsson
Martin Ödegaard til Vitesse á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur staðfest að félagið hafi lánað Martin Odegaard til Vitesse Arnhem í Hollandi. Lánssamningurinn gildir út júní á næsta ári.

Hinn 19 ára gamli Ödegaard sló í gegn með Stromsgödset í Noregi árið 2015 og í kjölfarið börðust stærstu félög Evrópu um að tryggja sér þjónustu hans.

Ödegaard spilaði sinn fyrsta deildarleik með Real Madrid í lokamferð spænsku úrvalsdeildarinnar 2017.

Á síðasta tímabili fór Ödegaard til hollenska félagsins Heerenveen á láni þar sem hann skoraði þrjú mörk í 38 deildarleikjum.

Ödegaard, sem á tólf landsleiki að baki með Noregi, verður áfram í Hollandi á komandi tímabili en hann er ekki inni í myndinni hjá aðalliði Real Madrid ennþá.
Athugasemdir
banner
banner