Það er mun erfiðara að rýna í líklegt byrjunarlið Breiðabliks en Stjörnunnar fyrir bikarúrslitaleikinn á morgun.
Þrír miðjumenn Blika hafa verið að glíma við meiðsli í aðdraganda leiksins; Andri Rafn Yeoman, Oliver Sigurjónsson og Alexander Helgi Sigurðarson. Af þeim þremur var aðeins Oliver með í síðasta leik en fór af velli. Við hendum honum í líklegt byrjunarlið.
Viktor Örn Margeirsson hefur staðið sig vel í hjarta varnar Blika í síðustu leikjum og spennandi að sjá hvort hann byrji þennan leik eða hvort Ágúst Gylfason muni leita aftur í að hafa Elfar Frey Helgason með Damir Muminovic en þeir tveir hafa myndað eitt allra besta, ef ekki besta, miðvarðapar deildarinnar undanfarin ár.
Einnig verður fróðlegt að sjá hverjir verða á vængjunum hjá Blikum í leiknum.
Bikarúrslitaleikurinn verður 19:15 annað kvöld.
Athugasemdir