Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 14. september 2018 14:13
Magnús Már Einarsson
Jói Berg klár í slaginn á sunnudaginn
Klár í slaginn.
Klár í slaginn.
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson, kantmaður Burnley, er klár í slaginn fyrir leikinn gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Jóhann tognaði aftan í læri í leik gegn Fulham í lok síðasta mánaðar.

Hann missti í kjölfarið af landsleikjum Íslands gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni.

Jóhann er hins vegar búinn að jafna sig af meiðslunum og verður með um helgina.

„Jóhann er í lagi og það er gott," sagði Sean Dyche, stjóri Burnley, á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner
banner