„Við nýttum ekki okkar stöður í fyrri hálfleik, fannst við vera fá fína möguleika og spila ágætlega. Þær skora úr sinni fyrstu sókn,“ sagði Kristján Gylfi Guðmundsson aðstoðarþjálfari ÍR eftir 0-2 tap liðsins gegn Þrótti í kvöld. „Í síðari hálfleik vorum við bara lélegar,“ sagði hann enn fremur.
Lestu um leikinn: ÍR 0 - 2 Þróttur R.
„Sumarið er vonbrigði heilt yfir en samt sem áður lifðum við það alla vega af og það er hægt að byggja á því, þetta snýst um það og hafa bara gaman hér í dag,“ sagði hann um sumarið sem er liðið.
„Við vorum komin í slæma stöðu svo að halda okkar sæti í deildinni var okkar fyrsta markmið, svo sjáum við bara til með framhaldið,“ sagði hann að lokum.
Athugasemdir