ÍR tapaði 3-0 fyrir toppliði HK í dag og eiga því úrslitaleik við Magna næsta laugardag um sæti í deildinni á næsta tímabili.
„Við vorum svo sem bara á pari við þá, nema náttúrulega þrjú mörk úr horni, við getum bara ekki varist þeim," sagði Brynjar Gestsson, þjálfari ÍR, eftir leik.
„Við vorum svo sem bara á pari við þá, nema náttúrulega þrjú mörk úr horni, við getum bara ekki varist þeim," sagði Brynjar Gestsson, þjálfari ÍR, eftir leik.
Lestu um leikinn: HK 3 - 0 ÍR
„Þetta er bara úrslitaleikur um að halda sér í deildinni og við komum auðvitað að fullu inni hann," sagði Brynjar um lokaleikinn gegn Magna í næstu umferð.
Binni var ekki nægilega sáttur með dómgæsluna í dag þar sem honum fannst nokkrir stórir dómar ekki falla þeim í hag.
„Það var töluvert að vafa atriðum í dag sem að eru stór þar sem að villi ákveður það að hann var að dýfa sér, en svo sést það bara í sjónvarpinu að hann var ekkert að því, hvort hann dæmi víti á það má liggja á milli hluta, en það að spjalda hann og setja hann í bann er allsherjar grín," sagði Binni að lokum
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir