Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var hæstánægður eftir 3-0 sigur á ÍR í kvöld. Sæti HK í Pepsi-deildinni fyrir næsta tímabil er tryggt en Brynjar fer upp með liðið á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn.
Lestu um leikinn: HK 3 - 0 ÍR
„Mér líður bara frábærlega," sagði Brynjar eftir leik. „Við vissum hver staðan væri fyrir leik, stig og helst sigur myndu koma okkur upp. Við vildum vinna á heimavelli fyrir framan frábæra áhorfendur sem mættu hérna í dag."
„Þetta var ekki fallegur leikur í heildina, við skorum þrjú mörk úr hornum. Síðan flautar dómarinn til leiksloka og við erum búnir að tryggja sæti okkar."
HK er á toppi deildarinnar fyrir lokaumferðina. Síðasti leikur er gegn Haukum á útivelli, en fyrir leikinn er HK með einu stigi meira en ÍA.
„Það er alltaf gaman að lyfta dollu," sagði Brynjar en viðtalið við hann má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir