Leikur tyrkenska félagsins Galatasaray og rússneska félagsins Lokomotiv Moskvu er kannski ekki sá leikur sem fær mesta athygli fyrir kvöldið í Meistaradeildinni en ein tölfræði er þó virkilega áhugaverð í tengslum við þann leik.
16 ár eru liðin síðan að þessi lið áttust síðast við en þá þjálfaði Fatih Terim og Yuri Semin liðin.
Þeir félagar þjálfa einnig liðin í kvöld! Terim hefur fjórum sinnum á ferlinum tekið við Galatasaray og það sama á við um Semin hjá Lokomotiv.
Þjálfaraferill Terim hjá Galatasaray
1996-2000
2002-2004
2011-2013
2017-
Þjálfaraferill Semin hjá Lokomotiv
1986-1990
1992-2005
2009-2010
2016-
Athugasemdir