Þjóðverjinn Bernd Leno mun fá tækifæri í byrjunarliði Arsenal í kvöld þegar liðið spilar við Vorskla frá Úkraínu í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Leno var keyptur frá Bayer Leverkusen í síðasta félagaskiptaglugga en hann hefur þurft að sitja á varamannabekknum í byrjun tímabilsins.
Petr Cech hefur staðið í markinu. Unai Emery, stjóri Arsenal, vill að markverðir sínir spili boltanum á jörðinni en það er ekki sérfræðigreinin hans Cech. Tékkneski markvörðurinn hefur oft lent í vandræðum í byrjun tímabilsins og í kvöld mun Leno fá tækifæri til að láta ljós sitt skína.
„Bernd Leno mun spila á fimmtudag," sagði Emery á blaðamannafundi í gær.
Leikur Arsenal og Vorskla hefst klukkan 19:00.
Athugasemdir