Reggae kongurinn Bob Marley gerði lagið Three Little Birds heimsvinsælt á sínum tíma og hefur það verið eitt helsta stuðningsmannalag Ajax í mörg ár.
Ky-Mani Marley er einn af ellefu viðurkenndum afkvæmum Bob og er stuðningsmaður hollenska félagsins.
Hann mætti á Johan Cruyff Arena, heimavöll Ajax, til að taka lagið fyrir leik liðsins gegn AEK Aþenu í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Stuðningsmenn tóku allir undir sem einn og var afraksturinn stórkostlegur eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan. Ajax vann leikinn 3-0.
Bob Marley’s son @maestromarley singing his father’s famous “Three Little Birds” with @afcajax supporters in Amsterdam 🇯🇲🇳🇱
— 433 (@official433) September 20, 2018
🎥 @tassie52 @germain__trim pic.twitter.com/f6GS9g3h2w
Athugasemdir