Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Zurich höfðu betur gegn AEK Larnaca í Kýpur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gær.
Guðlaugur Victor bar fyrirliðabandið og átti mjög góðan leik á miðjunni.
Benjamin Kololli skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og tryggði þannig stigin þrjú.
Kololli og samherjar hans hjá Zurich þekktu leikvanginn hjá Larnaca þó ekkert sérlega vel og kom það heldur betur í bakið á honum þegar hann ætlaði að fagna með stuðningsmönnum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af því þegar Kololli hverfur inn í leikvanginn í fagnaðarlátunum.
Hahaha don’t think this FC Zuerich player realised how deep the drop was!! 😅😅😅 pic.twitter.com/MgRL7PEy09
— Football Away Days (@FBAwayDays) September 20, 2018
Athugasemdir