ÓVíst er hvenær vinstri bakvörðurinn Benjamin Mendy verður klár í slaginn á nýjan leik með Manchester City.
Mendy hefur ekkert spilað með Manchester City síðan eftir landsleikjahléið á dögunum.
Mendy hefur ekkert spilað með Manchester City síðan eftir landsleikjahléið á dögunum.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, sagði í síðustu viku að Mendy væri meiddur á hné en á fréttamannafundi í dag talaði hann um að meiðslin séu í ökklanum.
Guardiola gat ekki gefið nein svör um það í dag hversu lengi Mendy verður frá keppni.
Manchester City mætir Cardiff á útivelli klukkan 14:00 á morgun.
Athugasemdir