Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Þróttara, fór yfir tímabilið í viðtali eftir 1-1 leikinn gegn ÍA í lokaumferð Inkasso-deildarinnar í dag.
Þróttur endaði í 5. sæti deildarinnar en Viktor Jónsson var sjóðheitur með liðinu í sumar og skoraði 22 mörk. Gunnlaugur virtist þá ýja að því að Viktor sé á förum.
„Það var sótt á báða bóga og mikið um færi. Heilt yfir voru þetta sanngjörn úrslit. Við vorum í basli með að stilla upp liði og mikið af meiðslum undanfarið, meðal annars strákurinn sem spilaði í hægri bakverði í dag var 16 ára," sagði Gunnlaugur Jónsson.
„Ég held að það sé misskilningur að þó að leikir skipti ekki máli, þá þurftum við að keppa því að enda þetta mót sæmilega. Þannig þetta er næst besta niðurstaðan að gera jafntefli á móti meisturunum."
„Það hefur verið kaflaskipt sumar. Við lentum í miklum mótbyr til að byrja með, aðallega meiðslalega séð. Það var ekki mikill stöðugleiki og ofboðslega lítið að gerast en við ákváðum með þessum Skagaleik sem var lokaleikur fyrri umferðar til að hrista upp í hlutunum."
„Við flöskum þessu svo á Haukaleiknum sem við töpum og það voru þrjú töp í röð."
„Það liggur ljóst fyrir þó að ég sé ekki búinn að skrifa undir samning þá er í meginatriðum klárt að ég verði tvö ár í viðbót," sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir