Jón Daði Böðvarsson er í liði vikunnar í Championship deildinni hjá tölfræðivefsíðunni WhoScored.com.
Jón Daði er búinn að vera einn af bestu mönnum Reading á upphafi tímabils og skoraði í 3-0 sigri liðsins gegn Hull City um helgina.
Andy Yiadom er eini samherji Jóns Daða í liði vikunnar en þar má einnig finna tvo leikmenn Sheffield Wednesday sem hafði betur gegn Aston Villa á Villa Park.
Yiadom er jafnframt með hæstu einkunn allra í liðinu, 9.2, en næsti maður er Che Adams, sóknarmaður Birmingham, með 8.7. Jón Daði fékk 8.3 í einkunn.
Our Championship team of the weekhttps://t.co/7094SxKrhN pic.twitter.com/5Ljble2LgP
— WhoScored.com (@WhoScored) September 24, 2018
Athugasemdir