Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 11. október 2018 22:38
Daníel Rúnarsson
Birkir Bjarna: Við erum enn hungraðir og viljum vinna
Icelandair
Birkir Bjarnason  skorar mark sitt í kvöld
Birkir Bjarnason skorar mark sitt í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Birkir Bjarnason skoraði fyrra mark Íslands gegn Frökkum í kvöld er liðin gerðu 2-2 jafntefli en hann segir liðið enn hungrað í meiri árangur.

Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  2 Ísland

Birkir skoraði á 30. mínútu en Alfreð Finnbogason undirbjó markið áður en Kári Árnason bætti við öðru. Frakkar komu til baka undir lok leiks með sjálfsmarki frá Hólmari Erni Eyjólfssoni áður en Kylian Mbappe skoraði úr víti.

„Við spiluðum rosalega góðan leik frá fyrstu mínútu. Að vera 2-0 yfir á móti svona liði er frábært og gott fyrir okkur að sýna að við erum ekki búnir eins og hefur komið fram," sagði Birkir við Fótbolta.net.

„Í síðustu tveimur leikjum vorum við með ótrúlega mikið af breytingum, sex nýja leikmenn. Það er ekki það að þeir séu nógu góðir, það er þannig að við höfum spilað á sama liðinu í fimm eða sex ár og þá er erfitt þegar það eru miklar breytingar því við náum ekki að æfa mikið saman."

Það er ekki uppselt á landsleik Íslands gegn Sviss á mánudag og hefur verið mikil gagnrýni á liðið eftir 6-0 tapið gegn Sviss og svo 3-0 tapið gegn Belgíu en frammistaðan í kvöld sýndi að það er enn hungur í liðinu.

„Ég vona það. Við höfum þörf á eins mörgum áhorfendum og við getum og vonandi sýnir þetta að við erum enn hungraðir og viljum vinna," sagði Birkir í lokin.

Hægt er að sjá viðtalið í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner