fös 12. október 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin um helgina - Sviss fær tvo hvíldardaga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg um að vera í Þjóðadeildinni um helgina þar sem íslenska landsliðið á heimaleik við Sviss og fær tækifæri til að hefna sín fyrir 6-0 tapið í síðasta mánuði.

Svisslendingar kíkja til Íslands á mánudaginn og verða nokkuð þreyttir því þeir eiga útileik við Belgíu í kvöld. Þeir fá svo laugardag og sunnudag til að hvílast en þurfa einnig að gera ráð fyrir flugferð yfir Norður-Atlantshafið.

Belgía - Sviss er þó ekki eini stórleikur kvöldsins því Króatía tekur á móti Englandi á sama tíma, og verða leikirnir sýndir beint á Stöð 2 Sport 2 og Sport 3.

England hefur harma að hefna gegn Króatíu eftir undanúrslitaleik liðanna á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Króatía tapaði 6-0 fyrir Spánverjum í fyrstu umferð riðilsins, England tapaði 1-2 á heimavelli.

Á laugardaginn á Holland leik við Þýskaland í A-deildinni en einnig er að finna áhugaverða leiki í neðri deildunum, þar sem Írar mæta Dönum, Slóvakar eiga leik við Tékka og Norðmenn taka á móti Slóvenum.

Ítalía heimsækir Pólland á sunnudaginn og svo á Ísland loks leik við Sviss á mánudaginn, á sama tíma og Spánn tekur á móti Englandi.

Föstudagur:
A-deild
18:45 Belgía - Sviss (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Króatía - England (Stöð 2 Sport 2)

B-deild
18:45 Austurríki - Norður-Írland

C-deild
18:45 Eistland - Finnland
18:45 Grikkland - Ungverjaland

D-deild
18:45 Hvíta-Rússland - Lúxemborg
18:45 Moldavía - San Marínó

Laugardagur:
A-deild
18:45 Holland - Þýskaland (Stöð 2 Sport)

B-deild
13:00 Slóvakía - Tékkland (Stöð 2 Sport)
18:45 Írland - Danmörk (Stöð 2 Sport 2)

C-deild
16:00 Noregur - Slóvenía (Stöð 2 Sport)
18:45 Búlgaría - Kýpur

D-deild
16:00 Armenía - Gíbraltar
16:00 Georgía - Andorra
16:00 Lettland - Kasakstan
18:45 Makedónía - Liechtenstein

Sunnudagur:
A-deild
18:45 Pólland - Ítalía (Stöð 2 Sport)

B-deild
16:00 Rússland - Tyrkland (Stöð 2 Sport)

C-deild
13:00 Rúmenía - Serbía (Stöð 2 Sport)
18:45 Ísrael - Albanía
18:45 Litháen - Svartfjallaland

D-deild
16:00 Aserbaídsjan - Malta
16:00 Færeyjar - Kosóvó

Mánudagur:
A-deild
18:45 Ísland - Sviss (Stöð 2 Sport)
18:45 Spánn - England (Stöð 2 Sport 2)

B-deild
18:45 Bosnía - Norður-Írland

C-deild
18:45 Eistland - Ungverjaland
18:45 Finnland - Grikkland

D-deild
18:45 Hvíta-Rússland - Moldavía
18:45 Lúxemborg - San Marínó
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner