Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. október 2018 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mbappe fyrstur í sögunni til að skora tíu fyrir tvítugt
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe varð í gær fyrsti Frakki sögunnar til að skora tíu landsliðsmörk fyrir tvítugt.

Heimsmeistarar Frakka fengu Ísland í heimsókn í vináttulandsleik í gærkvöldi og lentu óvænt tveimur mörkum undir.

Hlutirnir virtust ekki vera að snúast Frökkunum í hag fyrr en Mbappe var skipt inná í síðari hálfleik.

Hraði og snerpa Mbappe breyttu gangi leiksins og gerði hann jöfnunarmark Frakka úr vítaspyrnu á 89. mínútu.

Vítaspyrnumarkið var tíunda landsliðsmarkið hans í 25 A-landsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner