Usain Bolt, sneggsti maður mannkynssögunnar, á sér draum um að verða atvinnumaður í knattspyrnu áður en hann verður of gamall.
Bolt er 32 ára gamall og hefur verið að æfa með Centra Coast Mariners í Ástralíu að undanförnu.
Bolt fékk 20 mínútur í æfingaleik með félaginu í ágúst en fékk að vera í byrjunarliðinu gegn Campbelltown í gær.
Bolt fékk að spila fyrstu 75 mínúturnar og náði að skora tvö mörk þó hann hafi ekki komið mikið við sögu í leiknum, en hann átti aðeins tvær heppnaðar sendingar á tíma sínum á vellinum.
Bolt byrjaði við hlið Ross McCormack í sóknarlínu Central Coast, en McCormack gerði garðinn frægan með Leeds og Fulham í enska boltanum.
„Það er mjög góð tilfinning að skora tvö mörk í sínum fyrsta byrjunarliðsleik. Ég er ánægður að hafa komið hingað og sýnt heiminum að ég er að bæta mig sem knattspyrnumaður," sagði Bolt að leikslokum.
Here it is, @usainbolt, the footballer, scores his maiden Mariners goal. What a moment! Don't think limits! ⚡️ #SWSvCCM #CCMFC 🎥@FOXFOOTBALL pic.twitter.com/X7zrqmrYCZ
— Central Coast Mariners (@CCMariners) October 12, 2018
BOLT HAS HIS BRACE! ⚡️
— Central Coast Mariners (@CCMariners) October 12, 2018
That's two goals tonight for @usainbolt!! What a moment in sport, don't think limits! #CCMFC 🎥 @FOXFOOTBALL pic.twitter.com/0NeIH9i49V
Athugasemdir