Íslenska U21-landsliðið mætir Spáni á Floridana-vellinum í Árbæ á morgun klukkan 16:45. Þetta er lokaleikur Íslands í undankeppni EM en ljóst er að strákarnir okkar eiga ekki möguleika á að komast áfram. Spánverjar hafa unnið riðilinn.
Bakvörðurinn Alfons Sampsted spilaði með í fyrri leiknum gegn Spánverjum, leik sem Ísland tapaði 1-0.
Bakvörðurinn Alfons Sampsted spilaði með í fyrri leiknum gegn Spánverjum, leik sem Ísland tapaði 1-0.
„Sá leikur var eins og við mátti búast, þeir voru meira með boltann og við vorum að halda. Við áttum okkar sénsa og þeir fengu ekki mikið af opnum færum. Þetta gæti litið alveg eins út á morgun," segir Alfons.
Hann er að spila fyrir Landskrona í B-deildinni, á lánssamningi frá Norrköping. Hann telur sig vera að taka framförum en útlitið er þó dökkt hjá Landskrona sem virðist á leið niður.
„Mér finnst þetta mjög flott. Ég fæ að spila allar mínútur í stóru hlutverki. Ég var að sækjast eftir því og þetta er frábært fyrir mig. Það eru fimm leikir eftir og við þurfum að vinna allavega fjóra til að eiga möguleika á að halda okkur uppi. Það er létt að halda mér jákvæðum því ég veit að ég fer aftur til Norrköping og mun klárlega koma til baka sem betri leikmaður. Þetta gefur mér helling."
Hann segir að markmiðið sé að sjálfsögðu A-landsliðið en mikið hefur verið rætt um að við höfum ekki mikla breidd í bakvörðunum.
„Til að byrja með vil ég standa mig vel með U21 og félagsliði mínu. Þá sjáum við hvað gerist," segir Alfons en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir