Þróttur Vogum hefur fengið til liðs við sig Miroslav Babic frá Hetti. Babic spilaði 20. leiki með Hetti í 2. deildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.
Miroslav Babic er fæddur 1994 og spilar sem miðjumaður. Babic spilaði með FK Stepojevac Vaga í heimalandi sínu áður en hann kom til Íslands.
„Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar er virkilega ánægð með að hafa náð samningum við Babic og bindur miklar vonir við samstarfið," segir í tilkynningu frá Þrótturum.
Þróttur Vogum endaði í 6. sæti 2. deildar karla í sumar.
Athugasemdir