Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 17. október 2018 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Flamengo staðfestir að Paqueta er á leið til Milan
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknartengiliðurinn Lucas Paqueta er á leið til AC Milan fyrir 35 milljónir evra auk bónusa, þetta staðfestir Bruno Spindel stjórnarmaður hjá Flamengo.

Paqueta mun vera gjaldgengur með ítalska félaginu í janúar en flytur til Mílanó í desember og byrjar að æfa með sínum nýju liðsfélögum.

Paqueta er aðeins 21 árs gamall og hefur sýnt framúrskarandi gæði í brasilíska boltanum á árinu. Hann spilaði sína fyrstu tvo A-landsleiki í ágúst.

„Við reyndum að framlengja samninginn hjá Lucas en hann vill fara til Evrópu og ætlum við að leyfa honum það," sagði Spindel.

„Það voru um það bil 10 félög sem vildu fá hann til sín en tilboðið frá Milan var best."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner