Chelsea reyndi að sækja Daniele Rugani til Juventus í sumar en mistókst þrátt fyrir tilboð sem er talið nema um 40 milljónum punda.
Rugani er 24 ára miðvörður sem Maurizio Sarri hefur miklar mætur á eftir að hafa starfað með honum hjá Empoli. Sarri reyndi að fá hann til Napoli þegar hann tók við þar en það mistókst.
„Chelsea lagði mikið púður í að fá Daniele en Juve hafnaði boðinu. Leikmaðurinn bað aldrei um félagaskipti," sagði Davide Torchia, umboðsmaður hans, við RMC Sport.
„Markmið hans er að komast í byrjunarliðið hjá Juventus og fá nýjan og endurbættan samning."
Rugani hefur aðeins komið við sögu í einum Serie A leik á tímabilinu og hefur aðeins komið inná sem varamaður í uppbótartíma í Meistaradeildinni.
Athugasemdir