Simon Mignolet segist vera staðráðinn í því að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Liverpool.
Belgíski markvörðurinn missti byrjunarliðssæti sitt til Loris Karius á síðasta tímabili og var Alisson Becker keyptur í sumar til að leysa stöðuna.
Alisson hefur farið vel af stað með Liverpool og er Mignolet aðeins búinn að spila einn leik á tímabilinu.
„Ég er ekki að hugsa um framtíðina akkurat núna. Ég er einbeittur að því að gera mitt besta og vera alltaf til staðar fyrir liðið. Ég ætla að vinna mér sæti í byrjunarliðinu," sagði Mignolet við The Sun.
„Eina sem ég get gert er að leggja mig fram á æfingum og bíða eftir tækifærinu."
Mignolet átti góðan leik með belgíska landsliðinu sem gerði 1-1 jafntefli við það hollenska í vináttulandsleik á þriðjudaginn.
Athugasemdir