Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. október 2018 17:39
Elvar Geir Magnússon
Stephen Ward missir af næstu leikjum Burnley
Stephen Ward.
Stephen Ward.
Mynd: Getty Images
Stephen Ward, varnarmaður Burnley, spilar ekki næstu leiki þar sem hann fór í minniháttar aðgerð á hné.

Þessi 33 ára leikmaður fór til sérfræðings þar sem hnéð hefur verið að trufla hann síðustu vikur.

Ljóst er að hann spilar ekki gegn Manchester City um helgina en Burnley segir að hann muni missa af næstu leikjum.

Síðasti leikur sem hann spilaði var tap Burnley gegn Burton í deildabikarnum 25. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner