Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 18. október 2018 13:40
Elvar Geir Magnússon
Pellegrini: Þurfum að fara varlega með Arnautovic
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, segir að fara þurfi varlega með Marko Arnautovic sem er meiddur á hné og spilar í gegnum sársauka.

„Marko er í lagi. Þegar hann kom úr landsliðsverkefni með Austurríki þá gat hann æft með liðinu án nokkurra vandræða. En við þurfum að fara varlega með hnéð á honum," segir Pellegrini.

Ekki að hugsa um Dzeko
Pellegrini sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var þar meðal annars spurður út í meintan áhuga á Edin Dzeko, sóknarmanni Roma.

„Það er verið að orða nóg af leikmönnum við okkur. Við getum ekki talað bara um einn. Ég þekki hann vel en við erum ekki að hugsa um það sem stendur," segir Pellegrini.

West Ham mætir Tottenham um helgina í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner