Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. október 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Tottenham hefur áhuga á Malcom
Malcom fær ekki margar mínútur hjá Barcelona.
Malcom fær ekki margar mínútur hjá Barcelona.
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að Tottenham gæti gert 44 milljóna punda tilboð í vængmanninn Malcom hjá Barcelona í janúarglugganum.

Malcom gekk í raðir Barcelona frá Bordeaux í sumar en hefur ekki fengið margar mínútur frá Ernesto Valverde.

Tottenham er að leita að möguleikum til að styrkja lið sitt.

Malcom í La Liga hingað til:
Ónotaður varamaður gegn Alaves
Sex mínútur gegn Real Valladolid
Ónotaður varamaður gegn Huesca
Meiddur gegn Real Sociedad og Girona
Nítján mínútur gegn Leganes
Ekki í hóp gegn Athletic Bilbao og Valencia

Samkeppnin er hörð hjá Barcelona og leikmenn eins og Lionel Messi og Ousmane Dembele eru á undan Malcom í röðinni. Þá getur Philippe Coutinho spilað á vængnum.

Brasilíumaðurinn Malcom skoraði tólf mörk og átti sjö stoðsendingar í 35 deildarleikjum í Frakklandi á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner