Tommaso Giulini, eigandi ítalska félagsins Cagliari, segir að hann muni ekki standa í vegi fyrir Nicolo Barella ef miðjumaðurinn vill spila í Meistaradeildinni.
Þessi 21 árs ítalski leikmaður hefur verið að spila mjög vel og verið orðaður við Meistaradeildarlið eins og Inter, Juventus og Liverpool. Þá hefur Arsenal mikinn áhuga á honum.
Þessi 21 árs ítalski leikmaður hefur verið að spila mjög vel og verið orðaður við Meistaradeildarlið eins og Inter, Juventus og Liverpool. Þá hefur Arsenal mikinn áhuga á honum.
„Ef hann verður áfram hjá okkur þá verð ég glaðasti maður heims en við gerum okkur ljóst fyrir því að strákurinn hefur liklega metnað fyrir því að spila í Meistaradeildinni," segir Giulini.
„Það er gaman að sjá hann í stóru hlutverki með ítalska landsliðinu. Hann hefur þróast og þroskast við bestu aðstæður hjá okkur."
Athugasemdir