Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. október 2018 11:31
Elvar Geir Magnússon
Besti leikmaður Inkasso gefur út lag
Viktor Jónsson raðaði inn mörkum í sumar.
Viktor Jónsson raðaði inn mörkum í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Viktor Jónsson í Þrótti kann meira en að skora mörk en hann og félagi hans, Reynir Haraldsson, eru búnir að gefa út lag sem heitir 'Hraðamet'. Þetta er þeirra fyrsta lag en þeir kalla sig 'Venjulega gaura'.

Viktor var markakóngur Inkasso-deildarinnar í sumar auk þess að vera valinn besti leikmaður deildarinnar. Félög í Pepsi-deildinni og í Skandinavíu hafa áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Reynir er einnig í boltanum. Hann lék með ÍR í Inkasso-deildinni í fyrra en á liðnu sumri var hann leikmaður Léttis í 4. deildinni. Faðir hans er tónlistarmaðurinn Halli Reynis.

Lagið er hægt að nálgast hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner