fös 19. október 2018 23:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Rooney segir að hann gæti ennþá verið hjá Everton
Rooney er búinn að vera frábær síðan hann kom til DC United.
Rooney er búinn að vera frábær síðan hann kom til DC United.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney trúir því að hann væri ennþá hjá Everton ef hann hefði ekki verið færður á miðsvæðið á miðju síðasta tímabili.

„Ég man eftir því að hafa horft á ástandið með Sam Allardyce. Það kom í ljós að liðið myndi spila betur, fara framar og vinna leiki með mig á miðsvæðinu,” sagði Rooney.

„Ég geri það sem ég hef alltaf gert á ferlinum og sett liðið í fyrsta sæti þegar ég ákvað að fara á miðsvæðið en ég trúi því að ef ég hefði spilað sem sóknarmaður hefði ég líklega náð 20 mörkum og allt í einu hefði fólk talað öðruvísi um mig.”

„Ég naut tímans þarna. Ég hefði augljóslega viljað að þetta hefði enst lengur en félagið tók sína eigin ákvörðun sem var erfitt að sætta sig við.”
Athugasemdir
banner
banner