Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. október 2018 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pochettino: Lloris er einn af bestu markvörðum í heimi
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Tottenham hafði betur í Lundúnaslag við West Ham í gær með einu marki gegn engu en Erik Lamela skoraði mark gestanna í Tottenham undir lok fyrri hálfleiks.

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Tottenham mætti ánægður í viðtal að leik loknum.

„Í fyrri hálfleik spiluðum við mjög vel og það hefði verið sanngjarnt ef við hefðum náð að skora tvö mörk í viðbót," sagði Pochettino sem var ánægður með Hugo Lloris í marki Tottenham. „Hugo Lloris er einn af bestu markvörðum í heimi".

Pochettino endaði á því að hrósa Manuel Pellegrini knattspyrnustjóra West Ham.

„Manuel Pellegrini er að vinna frábært starf, þeir náðu mjög góðum úrslitum gegn bæði Manchester United og Chelsea, það er mjög erfitt að koma á þennan völl."
Athugasemdir
banner