Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. október 2018 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Hofmann afgreiddi Mainz
Mynd: Getty Images
Jonas Hofmann er maður dagsins í þýska boltanum en hann skoraði þrennu er Borussia Mönchengladbach lagði Mainz auðveldlega á heimavelli.

Thorgan Hazard skoraði einnig fyrir Gladbach og er liðið í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn, þremur stigum eftir Borussia Dortmund.

Hertha Berlin gerði þá jafntefli við Freiburg, en sigur hefði gert heimamönnum í Berlín kleift að jafna Gladbach á stigum í toppbaráttunni.

Mainz og Freiburg eru bæði um miðja deild, með níu stig eftir átta umferðir.

Borussia M'Gladbach 4 - 0 Mainz
1-0 Jonas Hofmann ('21 )
2-0 Jonas Hofmann ('53 )
3-0 Thorgan Hazard ('58 )
4-0 Jonas Hofmann ('63 )

Hertha Berlin 1 - 1 Freiburg
1-0 Ondrej Duda ('7 )
1-1 Robin Koch ('36 )
Athugasemdir
banner
banner
banner