Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 21. október 2018 21:51
Brynjar Ingi Erluson
MLS: Rooney skaut DC United í úrslitakeppnina
Wayne Rooney er alger gleðigjafi fyrir DC United
Wayne Rooney er alger gleðigjafi fyrir DC United
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney skoraði tvö mörk í 3-1 sigri D.C. United á New York City FC í MLS-deildinni í kvöld en með sigrinum er United komið í úrslitakeppni deildarinnar.

Rooney gekk til liðs við DC United frá Everton í sumar en þá var liðið í neðsta sæti Austurdeildarinnar.

Nú nokkrum mánuðum síðar er Rooney kominn með 12 mörk og 6 stoðsendingar í 19 leikjum. Hann kom liðinu úr neðsta sæti og í úrslitakeppnina. Magnaður árangur.

Hann skoraði tvö gegn New York City FC í dag en fyrra markið kom á 8. mínútu en síðara á 74. mínútu úr vítaspyrnu. David Villa minnkaði muninn en það var of seint og lokatölur 3-1.

Zlatan Ibrahimovic og félagar LA Galaxy eiga möguleika á að komast í úrslitakeppnina en liðið þarf þó sigur í kvöld gegn Minnesota United og þá þarf liðið að sigra Houston Dynamo eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner