Zlatan Ibrahimovic skoraði fyrsta mark Los Angeles Galaxy í 3-1 sigri á Minnesota United í Vesturdeild MLS-deildarinnar í kvöld en sigur í lokaumferðinni tryggir sæti í úrslitakeppnina.
Zlatan skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir góða fyrirgjöf frá hægri áður en Ola Kamara bætti við öðru í byrjun síðari hálfleiks eftir sendingu frá Ashley Cole.
Zlatan lagði upp þriðja mark Galaxy en það var ítalski vængmaðurinn Romain Alessandrini sem gerði markið og lokatölur 3-1 fyrir Galaxy sem er í sjöunda sæti Vesturdeildarinnar með 48 stig, stigi minna en Real Salt Lake,
Salt Lake er búið að spila alla sína leiki en liðið tapaði fyrir Portland Timbers í kvöld, 3-0.
Galaxy spilar lokaleik sinn eftir viku gegn Houston Dynamo og þarf liðið í það minnsta stig úr þeirri viðureign til að komast í úrslitakeppnina.
Athugasemdir