Marquinhos, varnarmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, telur að Barcelona og Real Madrid geti gleymt því að reyna að fá Neymar frá félaginu.
Spænskir fjölmiðlar hafa undanfarna daga greint frá því að bæði Barcelona og Real Madrid hafi mikinn áhuga á að fá Neymar frá PSG en leikmaðurinn svaraði fyrir sig og ákvað að slökkva í sögusögnunum.
Marquinhos spilar með Neymar hjá PSG og með brasilíska landsliðinu en hann segir að félögin geti gleymt því að reyna að fá hann.
„Gangi Barcelona og Real Madrid sem allra best í að reyna fá Neymar," sagði Marquinhos í kaldhæðni.
„Forseti PSG leggur sig allan fram í að hugsa vel um leikmennina hér og ég sé ekki af hverju Neymar ætti að fara héðan. Hann hefur meira að segja greint frá því á samfélagsmiðlum. Ég get alla vega ekki svarað fyrir hann, þið verðið að spyrja hann út í þetta," sagði hann í lokin.
Athugasemdir