Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. október 2018 17:00
Elvar Geir Magnússon
Thiago Silva ekki með gegn Napoli
Thiago Silva verður fjarri góðu gamni.
Thiago Silva verður fjarri góðu gamni.
Mynd: Getty Images
Thiago Silva, varnarmaður Paris Saint-Germain, verður ekki með í Meistaradeildarleiknum gegn Napoli á morgun.

Þessi fyrrum miðvörður AC Milan er meiddur aftan í læri. Hann hefur ekki getað æft frá því á föstudag og missti af sigurleik PSG gegn Amiens um síðustu helgi.

Angel Di Maria og Marco Verratti ættu að vera klárir í slaginn.

Leikurinn á morgun verður áhugaverður en Carlo Ancelotti og Edinson Cavani eru að fara að mæta sínum fyrrum félögum.

Napoli er á toppi C-riðilsins með fjögur stig en Liverpool og Paris Saint-Germain eru með þrjú stig hvort lið. Alvöru spenna.
Athugasemdir
banner
banner
banner